
Sjana Rut
Sjana Rut er íslensk sjálfstætt starfandi tónlistar- og listakona sem hefur gefið út tónlist frá árinu 2016. Hún sækir innblástur í augnablik, minningar, tilfinningar og eigin reynslu og umbreytir þeim í lög sem fjalla um meðal annars ást, ástarsorg, bata og söknuð. Sem bæði lagahöfundur og myndlistarkona hefur Sjana sérstakt dálæti á að byggja upp heima í kringum tónlistina sína, þar sem einlæg frásögn, popp, ímyndunarafl og litrík myndræn nálgun mætast. Hún hefur gefið út fimm breiðskífur sem hver segir sína sögu. Sjana hefur komið víða fram og tekið þátt í ýmsum keppnum í gegnum tíðina.

